Reykjavík · Eric Kilby, CC BY-SA 2.0

Frítt verðmat 454-5464
Búslóðir · Fyrirtæki · Um allt land

Lífið er á hreyfingu
og við líka!

Við flytjum hvað sem er, hvert sem er. Leyfðu okkur að meta verkefnið þitt, gjaldfrjálst.

  • Frítt verðmat
  • Engin skuldbinding
  • Öll verð með VSK
Stór kassabíll Flutningslausna með F/L merki og símanúmeri
  • FríttVerðmat á öllum verkum
  • 95.000 kr.Þjónustupakki 1 – kassabíll og 2 menn í 3 klst
  • Allt landiðFrá Reykjavík og Þorlákshöfn
  • 8–18Opið alla daga
Þjónustan

Hvað þarftu að flytja?

Allt frá stökum hlutum innanbæjar yfir í heilu skrifstofurnar milli landshluta. Veldu flokk.

Traust

Af hverju Flutningslausnir?

Við tökum að okkur stærri verkin – og klárum þau frá A til Ö.

ADR-vottun

Heildarlausn

Við pökkum, berum, flytjum og förum með afganginn í Sorpu. Þú þarft ekki að lyfta fingri.

Reyndir og vandvirkir menn

Vanir menn sem fara varlega með eigur þínar, stórar sem smáar.

Einstök verkefni

Sérþarfir og stærri verkefni – við höfum net af samstarfsaðilum sem leysa það sem aðrir geta ekki.

Nærgætni og virðing

Við förum með heimilið þitt eins og það væri okkar eigið.

Frítt verðmat

Við komum, skoðum og gefum þér tilboð – þér að kostnaðarlausu.

Svona vinnum við

  1. Sendu okkur línuNokkrar línur um verkið, staðsetningu og dagsetningu.
  2. Frítt verðmatVið bjöllum til baka og gefum þér verð.
  3. Við mætum á tímaBílstjóri og aðstoð eftir þörfum.
  4. Komið á sinn staðBorið inn og sett niður þar sem þú vilt.
Algengar spurningar

Svör við því helsta

Hvernig á ég að undirbúa flutninga?+

Góður undirbúningur sparar tíma og krónur, því við vinnum á tímagjaldi.

  • Grisjaðu fyrst, pakkaðu svo. Það sem fer ekki með þarf hvorki að bera né borga fyrir.
  • Tæmdu skápa og kommóður og merktu hvern kassa með herbergi.
  • Þungt í litla kassa, létt í stóra. Bækur fara í litla kassa, sængur og púðar í stóra.
  • Mældu stóru hlutina (sófa, skápa, rúm) og dyr og stiga á nýja staðnum.
  • Settu skrúfurnar í merktan poka og límdu hann á hlutinn sem þær eiga við.
  • Taktu mynd af snúrunum aftan á sjónvarpi og tölvu áður en þú tekur úr sambandi.
  • Daginn fyrir: affrystu ísskápinn, tæmdu vatnið úr þvottavélinni og taktu frá stæði fyrir bílinn.
  • Pakkaðu kassa fyrir fyrstu nóttina sem fer með þér: hleðslutæki, tannbursta, rúmföt, klósettpappír og kaffi.
  • Hafðu verðmæti, skjöl og lyf hjá þér, ekki í bílnum.
Flytjið þið þunga hluti eins og píanó?+

Já, píanó, amerískir ísskápar, peningaskápar og aðrir þungir hlutir eru daglegt brauð hjá okkur. Við mætum með réttan búnað og vörulyftu sem tekur allt að 2.000 kg.

  • Segðu okkur hæð og aðgengi: hvaða hæð, hvort það sé lyfta og hve breiður stiginn er. Það ræður mestu um verðið.
  • Flygill? Já, við flytjum líka flygla. Hafðu samband og við gerum sérstakt tilboð.
  • Viltu fulla vörn? Við pökkum píanóinu inn áður en það fer í bílinn.
  • Láttu stilla píanóið 2–4 vikum eftir flutning, þegar það hefur aðlagast nýja rýminu.

Álagsgjald getur átt við hluti í þessum þyngdarflokki. Hringdu í 454-5464 og þú færð verð strax.

Af hverju að velja okkur?+
  • Allt landið: við keyrum frá Reykjavík og Þorlákshöfn, hvert sem er.
  • Engin leynigjöld: reiknaðu tímagjaldið á Verðskrá eða fast verð í Dreifingu – Milli landshluta, svo þú vitir hvað þú borgar.
  • Ekkert of þungt eða of flókið: píanó, peningaskápar, heilu lagerarnir.
  • Réttindin í lagi: ADR-réttindi, svo við megum flytja það sem aðrir mega ekki.
Bjóðið þið upp á reglulega þjónustu?+

Já, við sinnum reglulegum dreifingum og brettaflutningum fyrir fyrirtæki. Stakar vöru- og brettasendingar milli landshluta getur þú bókað og greitt strax í Dreifingu / Sendingum á föstu verði. Hafðu samband ef þú vilt fastan samning.

★★★★★
Mjög góð flutningsþjónusta. Duglegir og fagmannlegir.
JÓHANNA FRÍÐA
★★★★★
Very good
FLORIN

Valdar umsagnir frá viðskiptavinum okkar. Allir sem svara fá 5.000 kr. inneign, óháð því hvað þeir skrifa.

Hafðu samband

Sendu okkur línu
um verkefnið

Leyfðu okkur að meta verkefnið þitt, gjaldfrjálst. Við bjöllum við fyrsta tækifæri.

Veistu ekki hvað búslóðin er stór?Prófaðu búslóðarreikninn. Hann áætlar rúmmál í m³, mælir með bíl og getur sent listann með fyrirspurninni.
Sími454-5464
Netfangflutningslausnir@gmail.com
Hvað viltu gera?

Upplýsingarnar eru eingöngu notaðar til að svara fyrirspurninni eða bókuninni og eru ekki afhentar öðrum. Persónuverndarstefna

Póstlisti

Fréttu fyrst af tilboðum

Sértilboð, lausir dagar og góð ráð fyrir flutninga. Við sendum sjaldan og bara þegar það skiptir máli.

Þú getur skráð þig af listanum hvenær sem er. Netfangið er ekki afhent öðrum. Persónuverndarstefna

Umsögn

Hvernig gekk flutningurinn?

Við lesum allar umsagnir. Með leyfi þínu birtum við þær á síðunni svo aðrir viti við hverju þeir mega búast.

Einkunn

Fleiri spurningar?

Hringdu eða sendu línu. Við svörum öllum fyrirspurnum og gefum frítt verðmat.

HringjaFá frítt verðmat